Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við hringtorg við gatnamót Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis.

Málsnúmer 2509077

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (2186). fundur

Niðurstaða á opnun tilboða á vegum Vegagerðarinnar í Flóttamannaveg (410), gatnamót við Urriðaholt kynnt.

Samkvæmt opnunarskýrslunni þá var Óskatak ehf. lægstbjóðandi með tilboð að fjárhæð kr. 115.391.400, en kostnaðaráætlun verksins var kr. 200.450.100.

Vegagerðin mun semja um framkvæmdina við lægstbjóðanda, að því gefnu að tilboðið uppfylli öll skilyrði. Ráðgert er að framkvæmdir hefjist í kjölfarið og ljúki á vormánuðum 2026.

Garðabær undirbýr framkvæmd á öryggisopnun á gatnamótum Holtsvegar og Flóttamannavegar þannig að hægt verði að opna fyrir akstur neyðarbíla við sérstakar aðstæður þar til Urriðaholtsstræti verður opnað.