Beint í efni

Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi skipulagsmál skógræktar hjá sveitarfélögum, dags. 22. september 2025.

Málsnúmer 2509412

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

35. (2183). fundur

Bréf Skógræktarfélags Íslands lagt fram, þar sem sveitarfélög landsins eru hvött til að setja fram með skýrum hætti í aðalskipulagi hvar megi stunda landbúnað með nýskógrækt og hvar ekki. Þá eru sveitarfélög hvött til að endurskoða aðalskipulag sitt að loknum sveitastjórnarkosningum vorið 2026 og gera það þannig úr garði að það uppfylli kröfur skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 með síðari breytingum. Jafnframt eru sveitarfélög hvött til að vera á varðbergi gagnvart rangfærslum í umsögnum um framkvæmdaleyfi til nýskógræktar.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.