Holtsbúð 59 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
15. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Holtsbúð 59 þar sem spurt er hvort skipulagsnefnd samþykki hæð girðingar að opnu svæði, staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk að opnu svæði og útfærslu pergólu tengdri íbúðarhúsi.
Svar:
Skipulagsnefnd fellst ekki á girðingu á lóðarmörkum hærri en 1,5 m sem er sú hæð sem samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar heimilar. Þó svo að girðing sú sem fyrir er hafi verið um 1,8 m þá er það mat nefndarinnar að aðstæður á þessum stað sé með þeim hætti að ekkert tilefni sé til þess að fallast á hærri girðingu en samþykktin kveður á um. Myndir af eldri girðingu sýna auk þess að jarðvegi var lyft á þessum stað á meðan að lóðarmörk aðliggjandi lóða liggja neðar í fláa sem náði inn á lóðirnar og inn á opna svæðið. Á lóðinni nr.87 var fallist á hæð girðingar sem var að hluta til 1,8 m að hæð en þar eru aðstæður með þeim hætti að innsýn skapaðist af göngustíg sem liggur meðfram lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir staðsetningu smáhýsis og gerir ekki athugasemd við flatarmál þess enda er ekki kveðið á um smáhýsi í deiliskipulagi Holtsbúðar og Ásbúðar og gilda því ákvæði byggingarreglugerðar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útfærslu pergólu enda er hún innan byggingarreits sem er 1 metra frá lóðarmörkum að aðliggjandi lóð en 7 metrar frá lóðarmörkum að opnu svæði.