Fundargerð bæjarráðs frá 25/11 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (969). fundur
Björg Fenger ræddi 3.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og 4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðahverfið var deiliskipulagt í heild árið 2013 og tekur það til 85 hektara af um 250 hektara svæði Garðaholts. Í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er Garðahverfið skilgreint sem landbúnaðarsvæði þar sem lögð er áhersla á vernd menningar- og náttúruminja enda hefur þar varðveist einstakt búsetulandslag, sem á rætur allt aftur til miðalda.
Markmið breytinganna nú er að laga lóðafyrirkomulag, byggingarreiti og byggingarskilmála að þörfum uppbyggingar á svæðinu, í kjölfar samráðs við landeigendur, þannig að þeir styðji við og styrki þau verndarsjónarmið sem liggja til grundvallar deiliskipulaginu."
Þá ræddi hún jafnframt 7.tl., samkomulag um Vífilsstaði og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að undirritað hefur verið samkomulag milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, og Garðabæjar um framtíðarþróun eigna og lóða á Vífilsstöðum. Samkomulagið markar mikilvægt skref í sameiginlegri vinnu að frekari þróun og enduruppbyggingu Vífilsstaða.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja ríka áherslu á að í þeirri skipulagsvinnu sem framundan er verði tekið fullt tillit til menningarsögulegra gilda svæðisins og að uppbygging og breytingar á mannvirkjum verði í takt við arkitektúr, ásýnd og sérkenni Vífilsstaða. Mikilvægt er að þróun Vífilstaðareitsins verði í sátt við byggingararf, sögu og landslag svæðisins og að ný starfsemi styrki heildarmynd og aðdráttarafl staðarins."
Ingvar Arnarson ræddi 3.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd, Baldur Ó. Svavarsson, ítrekaði mótmæli sín frá því fyrir rúmum áratug með bókun í nefndinni. Í þeirri bókun kemur fram að nú sé að raungerast það sem áður hefur verið bent á, að húsum á bæjartorfum í Garðahverfi verði fjölgað og að leyfilegt byggingarmagn muni aukast. Gagnrýnt er að fjölgun og stækkun húsa á svæðinu leiði til óskipulagðrar byggðar og fasteignabrasks. Upphaflega var ætlunin að vernda byggðina með litlum húsum, en grunnflötur þeirra hefur verið stækkaður ítrekað. Nú er stefnt að því að heimila allt að 300 m² einbýlishús á hverri lóð. Garðabæjarlistinn hvetur til þess að horft verði til skipulagðari og metnaðarfyllri uppbyggingar á svæðinu."
Gunnar Valur Gíslason ræddi 15.tl. viðauka um samræmda móttöku flóttafólks.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn kýs gegn afgreiðslu þessa máls og hefði heldur viljað sjá Garðaholt þróað í einni heild. Svæðið er mjög afgerandi í svæðinu öllu og mun hafa mikil áhrif á það hvernig Garðaholtið í heild sinni mun þróast. Þannig mun þetta deiliskipulag bæði vera möguleg höft fyrir hugmyndir og möguleika holtsins í heild sinni en sannarlega einhver tækifæri. Við getum tekið undir gagnrýni um að framkomin tillaga skapi alls konar áskoranir sem ekki er ávarpað með þessari tillögu auk þess sem hún hefur ekki fengið nægjanlega umfjöllun í skipulagsnefndinni okkar."
Þá ræddi hann jafnframt 7.tl. samkomulag um Vífilsstaði og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn fagnar samkomulagi Garðabæjar og ríkisins um uppbyggingu Vífilsstaða. Er hér um spennandi svæði að ræða sem íbúar og almenningur eru áhugasamir um. Þegar Garðabær keypti landið á sínum tíma af ríkinu vakti það athygli og skapaði grundvöll fyrir því skipulagi sem nú er að byggjast upp í Vetrarmýri og Hnoðraholti."
Almar Guðmundsson ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og 4.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita og 7.tl. samkomulag um Vífilsstaði.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita, 4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi og 7.tl. samkomulag um Vífilsstaði.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 3.tl., afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 7.tl. samkomulag um Vífilsstaði og 13.tl. erindi frá Sögufélagi Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar - Garðahverfi.Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG) gegn 3 (ÞÞ, IA, GK).
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 3 (ÞÞ, IA).
Fundargerðin sem er 15. tl. er samþykkt samhljóða.