Skipulag og enduruppbygging á Vífilsstöðum
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (969). fundur
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins fyrir hönd Ríkissjóðs og Garðabæjar um framtíðarþróun eigna og lóða á Vífilsstöðum, sem undirritaður var af Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (2191). fundur
Kynnt minnisblað um skipulag og enduruppbyggingu Vífilsstaða, ásamt drögum að samkomulagi milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands og Garðabæjar um framtíðarþróun eigna og lóða á Vífilsstöðum.
Á grundvelli samkomulagsins hafa aðilar ákveðið að vinna sameiginlega að frekari þróun og enduruppbyggingu á svokölluðum Vífilsstaðareit.
Fyrst um sinn verður lögð áhersla á að ganga frá deiliskipulagi fyrir afmarkaðar lóðir sem nær yfir Spítalaveg 1-3, sem endurskipulagt verður undir verslunar- og þjónusturými með möguleikum á viðbótaruppbyggingu.
Á grundvelli uppfærðs deiliskipulags fyrir Spítalaveg 1-3 mun ríkið hefja opið söluferli á fasteignum innan þess svæðis undir breytta starfsemi í samstarfi við Garðabæ. Einnig er stefnt að því að hefja sölu á svokölluðu Búshúsi við Spítalaveg 5. Leitast verður við að ganga til samninga við aðila sem hefur fjárhagslega getu til að umbreyta fasteignum undir breytta starfsemi að teknu tilliti til menningarsölulegs gildi þeirra, svo sem þjónustutengda starfsemi sem eykur aðdráttarafl svæðisins og stuðlar að mannlífi og virkni.
Við deiliskipulagsgerðina verða einnig skilgreindir sérstakir byggingarreitir fyrir atvinnustarfsemi á lóðum í nánd við Spítalaveg 1-3 og verða þeir að hluta eða öllu leyti boðnir til sölu samhliða söluferli á Spítalavegi 1-3
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samkomulag og að fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.