Fundargerð bæjarráðs frá 9/12 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (970). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 5.tl., endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar því að unnið sé markvisst eftir tillögu okkar um lækkun hámarkshraða sem bæjarstjórn samþykkti í febrúar 2023, en hún hljóðaði svo: 'Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfissviði að útfæra aðgerðir til lækkunar aksturshraða á sem flestum vegum innan Garðabæjar þar sem nú er 50 km hámarkshraði, t.d. með lækkun hámarkshraða og öðrum hraðatakmarkandi aðgerðum.' Skýrsla EFLU sem kynnt var bæjarráði er liður í þeirri vinnu og sú lækkun á hámarkshraða sem fyrirhuguð er verður mjög mikilvæg fyrir umferðaröryggi í bænum öllum."
Gunnar Valur Gíslason ræddi 5.tl., endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ.
Almar Guðmundsson ræddi 5.tl., endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ og 2.tl., 50 ára afmæli Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 5.tl. hámarkshraða í Garðabæ.
Fundargerðin sem er 7. tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála: