Beint í efni

Skólahreysti 20 ára

Málsnúmer 2512115

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

48. fundur

Frá upphafi höfum við haft það í fyrirrúmi að keppnisvöllurinn ár hvert sé eins öruggur og hægt er. Nú er þannig komið að mikil þreyta er í burðarvirki keppnistækja og öryggisdýnur orðnar lúnar eftir 20 ára notkun og geymslu út í gámi. Til þess að halda Skólahreystimótin áfram þurfum við

að ráðast í að endurnýja keppnistól og tæki sem er kosnaðarsamt.

Til að tryggja að sem flestir unglingar fái tækifæri til að taka þátt í þessari öflugu sjónvarpskeppni og upplifa jákvæð gildi skólakeppna þurfum við á stuðningi að halda. Styrkur frá

ykkur myndi nýtast til hönnunar og uppbyggingar á nýjum keppnisbúnaði/keppnisvelli. Einnig erum við að hanna og smíða nýjan tölvu/dómarabúnað til að gera leikinn sýnilegri fyrir áhorfendur.

Óskum við eftir 250.000 kr styrk frá Garðabæ.

Lagt var fram erindi frá Skólahreysti þar sem óskað er eftir styrk frá Garðabæ vegna endurnýjunar á keppnisbúnaði og aðstöðu sem hefur verið í notkun frá upphafi verkefnisins. Afgreiðslu frestað.