Beint í efni

Tillaga um að draga fána að húni við Ráðhús Garðabæjar á fundardögum bæjarstjórnar á 50 ára afmælisári bæjarins.

Málsnúmer 2512280

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (970). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn samþykkir að íslenski þjóðfáninn verði dreginn að húni á fundardögum bæjarstjórnar á 50 ára afmælisári Garðabæjar 2026. Fánann skal draga á stöng að morgni fundardags og vera uppi þar til bæjarstjórnarfundi lýkur."

Greinargerð.
Tillagan er lögð fram til að vera liður í að minnast með hátíðlegum hætti að á árinu 2026 eru 50 ár síðan Garðabær hlaut kaupstaðarréttindi. Með því að draga fána að húni á fundardögum bæjarstjórnar er vakin athygli á að bæjarstjórn Garðabæjar sem kosin er með lýðræðislegum hætti af bæjarbúum muni koma saman þann daginn.
Um leið er það hvatning til íbúa að fylgjast með störfum bæjarstjórnar hvort sem er með því að koma á opna fundi bæjarstjórnar eða fylgjast með útsendingu funda á vef Garðabæjar.
Íslenski þjóðfáninn er tákn þjóðar og samstöðu og við að draga fánann á stöng á fundardögum bæjarstjórnar er Garðabær að gefa viðburðinum formlegan og virðingarfullan blæ.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju.

Tillagan er samþykkt samhljóða.