Beint í efni

Innritun nemenda í grunnskóla 2026-2027

Málsnúmer 2602473

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

37. fundur

Grunnskólafulltrúi sagði frá innritun í grunnskóla sem stendur yfir dagana 2.-10. mars. 328 nemendur fæddir árið 2020 eiga lögheimili í Garðabæ, munu hefja grunnskólagöngu haustið 2026. Nú er í fyrsta sinn innritað í gegnum Nemendagrunn sem er miðlægur gagnagrunnur sem heldur utan um skráningar nemenda í grunnskóla.