Stjörnuhlaupið 2026
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
48. fundur
Stjörnuhlaupið hefur verið árlegur viðburður í Garðabæ síðan 2012 sem sameinar keppnisanda, gleði, hreyfingu og útivist. Hlaupahópur Stjörnunnar er framkvæmdaraðili hlaupsins.
Boðið er upp á fjórar vegalengdir sem henta bæði byrjendum og reyndari hlaupurum og liggja allar hlaupaleiðirnar um fallega stíga Garðabæjar megin í Heiðmörk í einstöku landslagi og umhverfi. Stjörnuhlaup Sport24 er almenningshlaup fyrir alla sem vilja hreyfa sig og njóta fallegrar náttúru í leiðinni.
Jafnframt er boðið upp á skemmtiskokk fyrir alla aldurshópa. Ágóði af skemmtiskokkinu rennur til Minningar- og styrktarsjóðs Arnarins í Garðabæ.
Hlaupaleiðir 11 km, 17 km og 22 km veita ITRA stig.
Skemmtiskokkið fer fram á malbikuðum stígum.
Stjörnuhlaup Sport24 fer fram laugardaginn 16. maí kl. 10:00 frá íþróttahúsinu Miðgarði.
Kynning var lögð fram um tímasetningu og framkvæmd Stjörnuhlaupsins 16.maí nk.
Stjörnuhlaupið hefur verið árlegur viðburður í Garðabæ síðan 2012 sem sameinar keppnisanda,
gleði, hreyfingu og útivist. Hlaupahópur Stjörnunnar er framkvæmdaraðili hlaupsins.
Boðið er upp á fjórar vegalengdir sem henta bæði byrjendum og reyndari hlaupurum og liggja
allar hlaupaleiðirnar um fallega stíga Garðabæjar megin í Heiðmörk í einstöku landslagi og
umhverfi. Stjörnuhlaup Sport24 er almenningshlaup fyrir alla sem vilja hreyfa sig og njóta
fallegrar náttúru í leiðinni.
Jafnframt er boðið upp á skemmtiskokk fyrir alla aldurshópa. Ágóði af skemmtiskokkinu rennur
til Minningar- og styrktarsjóðs Arnarins í Garðabæ.
Hlaupaleiðir 11 km, 17 km og 22 km veita ITRA stig.
Skemmtiskokkið fer fram á malbikuðum stígum.
Stjörnuhlaup Sport24 fer fram laugardaginn 16. maí kl. 10:00 frá íþróttahúsinu Miðgarði.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnar því að Stjörnuhlaupið verði haldið í fjórtánda sinn í Garðabæ. Hlaupið hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess í íþróttalífi bæjarins og sameinar á jákvæðan hátt hreyfingu, útivist og samfélagslega þátttöku.
Ráðið lýsir ánægju með þann metnað sem stendur að baki viðburðinum og óskar framkvæmdaraðilum velfarnaðar með undirbúning og framkvæmd hlaupsins.