Framhaldsbolti
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
48. fundur
Framhaldsbolti er ætlaður drengum 16-19 ára sem hættir eru reglulegri iðkun eða langar bara að koma og spila fótbolta með öðrum jafnöldrum. Æfingarnar eru í klukkutíma í senn þar sem einfaldlega er skipt í lið og haft gaman. Atli Guðnason kennari og fyrrverandi knattpyrnumaður er frumkvöðull að verkefninu sem hefur verið með aðsetur í Kaplakrika frá janúar 2025. Nú er markmiðið að bjóða upp á samskonar tíma í Miðgarði frá næsta hausti auk tíma í Hafnarfirði. um 10 drengir úr Garðabæ hafa tekið þátt í þessu og má búast við að fleiri tækju þátt ef það væri í boði í Miðgarði.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnar verkefninu Framhaldsbolti, sem miðar að því að bjóða drengjum á aldrinum 16?19 ára sem hætt hafa reglulegri iðkun, eða vilja einfaldlega koma saman og spila knattspyrnu, upp á vettvang til hreyfingar og samveru.
Ráðið telur mikilvægt að skapa slík tækifæri fyrir ungt fólk til þátttöku í íþróttum á eigin forsendum og sér mikla möguleika í að bjóða upp á verkefnið í Miðgarði. Ráðið hvetur og telur mikilvægt að íþróttafélögin í bænumkomi að því að koma verkefninu á fót í Miðgarði. Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að hafa samband við félögin og hefja samtal um framhaldsbolta.