Störf ÍTG 2022 til 2026
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
50. fundur
Yfirlit yfir íþrótta-, tómstunda- og forvarnamál kjörtímabilsins.
Farið er í máli og myndum yfir það helsta sem komið hefur verið í framkvæmd á líðandi kjörtímabili sem nú er að enda.
Formaður íþrótta- og tómstundaráðs fór yfir störf ráðsins á kjörtímabilinu 2022-2026 í máli og myndum og rakti helstu verkefni, áherslur og framfaraskref á tímabilinu.
Á tímabilinu var unnið að fjölmörgum nýframkvæmdum og umbótaverkefnum, auk þess sem verulegt fjármagn var varið til viðhalds, endurnýjunar og uppbyggingar íþrótta- og tómstundamannvirkja. Þar bar hæst áframhaldandi uppbygging og þróun Miðgarðs, uppbygging íþróttahúss og sundlaugar í Urriðaholti, opnun Vinagarðs í Urriðaholti, auk nýrra útivistar- og samgöngustíga sem styrktu tengingu íbúa við íþrótta- og tómstundaaðstöðu.
Jafnframt var ráðist í mikilvægar viðhalds- og endurnýjunarframkvæmdir í eldri mannvirkjum, meðal annars í Mýrinni, Ásgarði og á Álftanesi, þar sem farið var í gólf, ný stúka var sett upp á Álftanesi, nýtt gervigras var lagt, og endurbætur urðu víða á búnaði, lýsingu o.s.frv. Áhersla var þannig lögð bæði á nýja uppbyggingu og ábyrga rækt við eldri innviði.
Ráðið lagði einnig ríka áherslu á að efla stuðning við félög og einstaklinga. Á tímabilinu voru samstarfssamningar og stuðningskerfi þróuð áfram, hvatapeningakerfið styrkt og tekjutenging viðbótarhvatapeninga tekin upp til að bæta aðgengi allra barna og ungmenna að skipulögðu starfi. Þá var fjárhæð ferðastyrkja hækkuð úr 20 þúsund krónum í 50 þúsund krónur, sem var mikilvægt skref í að efla stuðning við íþróttafólk sem sækir landsliðsverkefni og keppni utan landssteinanna.
Félagsmiðstöðvum barna og ungmenna fjölgaði úr þremur í sex á kjörtímabilinu, ungmennahús var opnað, félagsmiðstöð eldri borgara í Lambamýri á Álftanesi var tekin í notkun og undirbúningur hafinn að félagsmiðstöð fyrir fötluð ungmenni í Lambamýri.
Kjörtímabilið 2022-2026 einkenndist þannig af grósku og vexti og nefndarmenn voru sammála um að samstarfið hafi verið gott og skemmtilegt.