Tillaga Framsóknar um bætta aðstöðu við Álftaneslaug
Málsnúmer 2606713
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
2. fundur
Tillaga framsóknarflokkssins í Garðabæ um bætta aðstöðu í Álftaneslaug.
Tekin var til umræðu tillaga frá fulltrúa Framsóknarflokksins:
"Framsókn í Garðabæ leggur til að farið verði í úttekt á aðstöðu fyrir fatlaða í Álftaneslaug með það að markmiði að bæta aðgengi þeirra að svæðinu í heild.
Sömuleiðis að farið verði í úttekt á aðstöðu við heita og kalda svæðið. Metin verði þörf á því að stækka og bæta köldu aðstöðuna og skoða nýtingu á rými sem núna er undir eimbað, hvort hægt væri að hafa þar infrarauða sauna eða stækka núverandi saunaaðstöðu."
Málinu er vísað til fræðslu og frístundasviðs sem leggur fram áætlanir varðandi mikilvægar framkvæmdir í viðhaldi og umbótum í íþróttamannvirkjum bæjarins.