Erindisbréf ungmennaráðs.
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
5. fundur
Farið yfir erindisbréf ungmennaráðs og hugmyndir um breytingar á því.
Ungmennaráð Garðabæjar
02
5. fundur
Námskeið frá Kvan fyrir ungmennaráð var kynnt.
Rætt var um ráðstefnu UMFÍ undir yfirskriftinni ungt fólk og lýðheisla, sem fram mun fara dagana 18.-20. september að Reykjum.
Farið var yfir vinnureglur fyrir ungmennaráðið þar sem settur er rammi fyrir hlutverk nefndarmanna.
Farið var yfir reglur formanns-, varaformanns og stjórnarmeðlima og þær samþykktar.
Farið var yfir almennar reglur og voru þær samþykktar.
Ungmennaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum fyrir ráðið sem taka eiga gildi 1. september 2026.
Ungmennaráð Garðabæjar
03
5. fundur
Formanni og varaformanni falið að undirbúa hentugan fundartíma fyrir ungmennaráð.
Ungmennaráð Garðabæjar
04
5. fundur
UNICEF hefur beðið um stutt kynningarmyndband um ungmennaráðið og verkefni þess.
Nefndarmenn lýstu yfir áhuga á að taka þátt í undirbúningi við gerð myndbandsins.
Ungmennaráð Garðabæjar
05
5. fundur
Stefnt er að því að halda Ungmennaþing vikuna 26. október til 1. nóvember. Þar þarf að huga að samstarfi við skólastjórnendur í Garðabæ.
Ungmennaráð Garðabæjar
06
5. fundur
Áherslumál ungmennaráðs skólaárið 2026-2027 rædd.
Opnunartímar sundlauga og ungmennahúss rædd.
Hugmyndir um mögulegt samstarf við aðrar nefndir Garðabæjar rædd.
Jafnframt voru mögulegar heimsóknir ungmennaráðs í félagsmiðstöðvar Garðabæjar ræddar.
Hugmyndir að aðstöðu við Ásgarðslaug rædd.
Hugmynd kom upp um að fá upplýsingaskilti um fugla á Álftanesi (Álftanesveg).
Leiðarkerfi strætó rædd.
Ýmis mál til úrbóta í nærumhverfi Garðabæjar rædd, svo sem verslanir, lýsingu knattspyrnuvalla, rafhlaupahjól og aðstöðu fyrir þau. Ábending kom fram um að fjölga reiðhjólastæðum í bænum.
Ungmennaráð vill reyna að auka aðgengi ungmenna að ráðinu og hvetja ungmenni til að koma hugmyndum sínum á framfæri við ráðið.