Íþróttamaður ársins og íþróttahátíð 2026
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
5. fundur
Til umræðu er fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar vegna ársins 2026.
Farið var yfir fyrirkomulag íþróttahátíðar Garðabæjar fyrir árið 2026 en hún fer fram í Stóra salnum í Ásgarði sunnudaginn 10. janúar kl. 13:00.
Íþróttafulltrúa var falið að senda út óskir til félaga um tilnefningar til íþróttafólks ársins, árangur á stórmótum, einstaklingum sem kepptu í fyrsta skipti með U-landsliði eða A-landsliði, tilnefningar til þjálfara ársins og ábendingar um sjálfboðaliða ársins.
ÍTG mun á fundi sínum 10. desember fara yfir tilnefningar tíl íþróttafólks ársins og velja þau sem til greina munu koma í kjörinu.
Almenningi verður boðið að taka þátt í vefkosningu yfir hátíðirnar líkt og undanfarin ár. Niðurstöður úr því vali verða hafðar til hliðsjónar í endanlegu vali.