Beint í efni

6. fundur

29.04.2015
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

6. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju

29.04.2015

Kl. 17:30 - 19:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður
  • Magnús Kristinn Einarsson - varamaður
  • Jóna Valborg Árnadóttir - varamaður
  • Þóroddur Bjarnason - varamaður
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1501381

01

Opinn fundur menningar- og safnanefndar

Um var að ræða opinn fund menningar- og safnanefndar fyrir bæjarbúa, listamenn og áhugafólk um menningu og listir undir yfirskriftinni: ,,Við leitum til þín - Hvernig getum við eflt og bætt menningarlíf í Garðabæ?" Fundurinn var auglýstur í Garðapóstinum 22. apríl 2015 og með dreifibréfi sem borið var í öll hús í bænum í kjölfarið. Til fundarins voru boðaðir aðal- og varamenn menningar- og safnanefndar við stjórnun umræðna á borðum. Alls sátu fundinn hátt í 60 manns og tóku þátt í umræðum.$line$$line$Formaður setti fund, bauð fundargesti velkomna og kynnti þann vilja menningar- og safnanefndar að leita eftir samráði við bæjarbúa um eflingu menningar og lista í Garðabæ og með því að kalla eftir skoðunum og ábendingum íbúa vilji nefndin einnig stuðla að samheldni bæjarbúa um menningarlífið í bænum og mótun þess.$line$$line$Formaður kynnti til sögunnar stefnu Garðabæjar í menningarmálum sem samþykkt var 2005 og rakti í stuttu máli stefin og frumtónana sem þar koma fram og tengdi áherslur fundarins þar við. Menningarstefnan lá frammi á fundinum til dreifingar. Jafnframt fór formaður yfir markmið fundarins sem er að afla ábendinga og hugmynda frá bæjarbúum og öðru áhugafólki um menningu og listir í Garðabæ sem nýst geti menningar- og safnanefnd við mótun aðgerðaáætlunar Garðabæjar í menningarmálum til næstu ára. $line$$line$Því næst hélt Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg, örfyrirlestur (20 mín) undir heitinu ?Menning er mannréttindi?. Signý fræddi gesti um menningarstefnu borgarinnar og aðgerðaáætlun henni tengdri. Bæði skjölin lágu frammi á fundinum til dreifingar.$line$$line$Að því loknu hófust opnar umræður á borðum þar sem borðstjórar leituðu eftir hugmyndum og ábendingum fundargesta um hvernig megi efla og bæta menningarlíf í Garðabæ. Einnig voru gestir beðnir um að hugleiða og koma með ábendingar og hugmyndir um hvað væri mikilvægast að komi til framkvæmda í menningar- og listalífi Garðabæjar á næstu árum, hver framtíðarsýn þeirra væri í menningarmálum Garðbæinga og hvaða ný verkefni þeir sæju fyrir sér þar. $line$$line$Eftir umræður á borðum var stutt samantekt þar sem fulltrúi hvers borðs fór yfir helsta umræðuefni á sínu borði. Allir fundargestir skiluðu ábendingum sínum og hugmyndum á blaði. $line$$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi annast vörslu allra gagna frá fundinum og mun í kjölfarið taka saman niðurstöður og flokka þær til frekari úrvinnslu menningar- og safnanefndar. $line$$line$Í lokin kynnti formaður að niðurstöður umræðna myndu verða birtar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, þakkaði fundargestum fyrir þátttökuna í þessum opna hugarflæðisfundi um menningarmál í Garðabæ og sleit fundi um kl. 19:30.$line$