76. fundur
76. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
10.11.2026
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Halldór Snær Lárusson - aðalmaður
- Egill Trausti Ómarsson - aðalmaður
- Harpa Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
01
Menningardagskrá fyrir skólahópa
Alls 4275 nemendur hafa komið í skipulagða menningardagskrá í Hönnunarsafn, Bókasafn, Minjagarð, Tónlistarskóla og á Garðatorg á árinu 2026. Einstaka viðburðir fóru fram í grunnskólum bæjarins.
Fylgiskjöl
02
Fjölskyldustundir - Menning í Garðabæ
Rætt um þróun og stöðu fjölskyldustunda sem fara fram fyrsta sunnudag í mánuði á Hönnunarsafni og þriðja laugardag í mánuði á Bókasafni Garðabæjar.
03
Styrkir til menningarstarfssemi 2026
Seinni umræða
Önnur umferð umræðu um styrkveitingar. Styrkir veittir alls fimm verkefnum.
04
Aðventuhátíð Garðabæjar 2026
Dagskrá Aðventuhátíðar Garðabæjar kynnt en hún fer fram með hefðbundnu sniði þar sem fjölskyldum er boðið upp á samveru, sköpun og tónlist. Dagskrá lýkur með jólaballi og leik Blásarasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar. Norræna félagið í Garðabæ mun auk þess bjóða gestum veitingar.