Beint í efni

64. fundur

08.04.2025
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

64. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Hönnunarsafni við Garðatorg

08.04.2025

Kl. 08:30 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
  • Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2301082

01

Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026

Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.

Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026. Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði sat fundinn undir þessum lið, kynnti aðgerðaráætlunina og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Málsnúmer 2503008

02

Sinfó í sundi - Samfélagsgleði um allt land í lok ágúst

Menningar- og safnanefnd styður að Garðabær taki þátt í verkefninu Sinfó í sundi! í lok ágúst.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2504103

03

Bæjarlistamaður og heiðursviðurkenning 2025

Menningar- og safnanefnd samþykkti einróma val á bæjarlistamanni. Valið fer til samþykktar hjá bæjarráði.Lagt til að útnefningarathöfn fari fram föstudaginn 23. maí kl. 17.

Málsnúmer 2504150

04

Jazzþorpið í Garðabæ 2025

Dagskrá Jazzþorpsins í Garðabæ 2025 kynnt og nýtt kynningarefni. Þorpið verður opnað föstudaginn 2. maí kl. 17 og metnaðarfull og áhugaverð dagskrá fer fram á göngugötunni Garðatorgi til og með sunnudagskvöldi 4. maí.

Fylgiskjöl