3. fundur
3. fundur
Öldungaráð
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.09.2026
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Berglind Víðisdóttir - formaður
- Eysteinn Haraldsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir
- Helgi Halldórsson
- Inga Jóna Óskarsdóttir
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Þóra Gunnarsdóttir - forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu
- Sólveig Valgeirsdóttir - forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Kynning á félagsstarfi eldra fólks i Garðabæ
Kynning á félagsstarfi eldra fólks í Garðabæ. Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks kynnti starfið sem framundan er.
02
Hreyfivika Evrópu 2026
Kynning á dagskrá Garðabæjar tengt hreyfiviku í Evrópu. Öldungaráð telur mikilvægt að taka þátt í slíkum verkefnum til þess að auka vitund um mikilvægi hreyfingar og virkni og stuðla að bættum lífsgæðum eldra fólks.
03
Spretthópur um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.
Kynning á vinnu spretthóps um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri. Harpa Rós Gísladóttir, fulltrúi spretthópsins sat fundinn undir þessum lið og fór yfir verkefni hópsins. Öldungaráð lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem hefur átt sér stað og framundan er í málefnum eldra fólks.