Beint í efni

3. fundur

03.10.2024
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

3. fundur

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

03.10.2024

Kl. 08:30 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristín Einarsdóttir - formaður
  • Sveinbjörn Halldórsson - aðalmaður
  • Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi
  • Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2405293

01

Frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk

Niðurstaða frumkvæðisathugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga, dags. 16. maí 2024 lagt fram til kynningar.

Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga. dags. 16.05.2024 lagt fram til kynningar. Starfsfólk velferðarsviðs hefur lagt drög að minnisblaði um úrbætur á heimasíðu Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2404194

02

Frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks

Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, varðandi frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, dags. 9. apríl 2024 lagt fram til kynningar.

Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, varðandi frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, dags. 9. apríl 2024 lagt fram til kynningar. Sótt hefur verið um framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að standa straum af kostnaði vegna úttektarinnar, sem er umfangsmikil. Um er að ræða sameiginlega umsókn Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2403006

03

Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu

Niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar varðandi Garðabæ vegna frumkvæðisathugunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu, dags. 16.9.2024, lagt fram til kynningar.

Niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar varðandi Garðabæ vegna frumkvæðisathugunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu, dags. 16.9.2024, lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2403491

04

OPCAT eftirlit með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja

Frumskýrsla Umboðsmanns Alþingis um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn á grundvelli OPCAT-eftirlits, dags. 27.6.2024 lögð fram til kynningar.

Frumskýrsla Umboðsmanns Alþingis um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn á grundvelli OPCAT-eftirlits, dags. 27.6.2024 lögð fram til kynningar. Starfsfólk fjármála- og stjórnsýslusviðs og velferðarsviðs vinna að vinnslu svara Garðabæjar vegna skýrslunnar sem send verða til Umboðsmanns fyrir 1. janúar 2025.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2409553

05

Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk

Í byrjun júlí 2022 skipaði félags- og vinnumarkaðsráðherra nýjan starfshóp með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga sem fékk það hlutverk að móta tillögur um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk. Tillögur starfshópa er að finna í áfangaskýrsla I sem kom út 24. janúar 2024 og áfangaskýrslu II sem kom út 24. september 2024.

Áfangaskýrsla I um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk sem kom út 24. janúar 2024 og áfangaskýrsla II sem kom út 24. september 2024 lagðar fram til kynningar.