Beint í efni

1. fundur

11.01.2014
Skipulagsnefnd Garðabæjar

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

11.01.2014

Kl. 09:30 - 14:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Á fundinn mættu aðalskipulagsráðgjafar Árni Ólafsson frá Teiknistofu arkitekta, Yngvi Þór Loftsson og Óskar Örn Gunnarsson frá Landmótun og Guðbjörg Lillja Erlendsdóttir, Bergþóra Kristinsdóttir og Árni Ólafsson frá Eflu. Auk þess sat Einar Ingimarsson fyrrverandi aðalskipulagsráðgjafi fundinn.$line$Farið var yfir alla helstu þætti gildandi aðalskipulags Garðabæjar og Álftaness og málefnið rætt vítt og breitt. Fyrir liggur að móta lýsingu verkefnisins í samræmi við 1.mgr.30.greinar Skipulagslaga.

Málsnúmer 1303894

02

Álftanesvegur milli Engidals og Bessastaðavegar

Bæjarstjóri og bæjarverkfræðingur kynnti tillögu um breytingu á framkvæmd gatnamóta Álftanesvegar, Garðahrauns og Ásahverfis sem gerir ráð fyrir hringtorgi í stað mislægra gatnamóta. Um er að ræða bráðabirgðalausn sem verður endurskoðaða samhliða gerð nýrra gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Engidal.