12. fundur
12. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
19.09.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stefán Snær Konráðsson - formaður
- Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
- Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Kynningar umsækjenda um stöðu aðalskipulagsráðgjafa.
Kl.8.00 Gláma-Kím/Landslag/Mannvit/ r3 ráðgjöf
Kl.9.00 Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónss/Landmótun/Efla
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Kynningar umsækjenda um stöðu aðalskipulagsráðgjafa.$line$Kl.8.00 Gláma-Kím/Landslag/Mannvit/ r3 ráðgjöf$line$Kl.9.00 Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónss/Landmótun/Efla
Á dagskrá voru kynningarfundir tveggja umsækjenda af 5 um stöðu ráðgjafa við endurskoðun Aðalskipulags Garðabæjar.Kl. 8.00 Gláma-Kím/ Landslag (Mannvit, r3 Ráðgjöf)Fulltrúar ráðgjafateymisins voru: Jóhannes Þórðarson og Silja Traustadóttir frá GlámuKím ehf , Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf, Þorsteinn Hermannsson frá Mannviti hf og Garðar Jónsson frá r3.Meðlimir teymisins gerðu grein fyrir fyrri störfum sem tengjast aðalskipulagsgerð, skipulagsgerð og umhverfismat áætlana auk annara starfa.Teymið gerði grein fyrir sýn sinni á verkefnið, ræddi aðferðir, greiningu, úrvinnslu, samráð og með hvaða hætti teymið vilji nálgast vinnuna. Reifuðu einnig þau tækifæri sem gætu falist í aðalskipulagsgerðinni. Teymið sér fyrir sér að aðalskipulagsgerð taki þrjú ár.Teymið lauk kynningu á tilsettum tíma, 30 mínútum og síðan var opnað fyrir spurningar og umræður í 10 mínútur. Teymið skilaði af sér efni sem innihélt kynningarglærur og ítarefni. Áður hafði teymið skilað ítarlegum upplýsingum um meðlimi teymisins og reynslu af skipulagsráðgjöf ofl.Teymið afhenti lokað umslag þar sem fram kom kostnaðaráætlun verkefnisins auk upplýsinga um útselt tímagjald. Kl. 9.00 Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar / Landmótun / EflaFulltrúar ráðgjafateymisins voru: Árni Ólafsson frá Teiknistofu arkitekta ehf , Óskar Örn Gunnarsson og Yngvi Loftsson frá Landmótun ehf og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir og Ólafur Árnason frá Eflu hf.Meðlimir teymisins gerðu grein fyrir fyrri störfum sem tengjast aðalskipulagsgerð, skipulagsgerð og umhverfismat áætlana auk annara starfa.Teymið fór yfir forsendur aðalskipulagsvinnu, áherslur sínar, framsetningu ákvæða, umhverfismat áætlana og setti fram drög að verkáætlun. Komið var inn á viðfangsefni vinnunnar , skipulagskosti, stefnumótun , samráðsferli og sóknarfæri. Teymið áætlar að vinna við gerð aðalskipulags taki um tvö ár ef engin snuðra kemur á þráðinn.Hópurinn lauk kynningu á tilsettum tíma, 30 mínútum og síðan var opnað fyrir spurningar og umræður í 10 mínútur. Teymið skilaði af sér efni sem innihélt kynningarglærur og ítarefni. Áður hafði teymið skilað ítarlegum upplýsingum um meðlimi teymisins og reynslu af skipulagsráðgjöf ofl.Teymið afhenti lokað umslag þar sem fram kom kostnaðaráætlun verkefnisins auk upplýsinga um útselt tímagjald.