Beint í efni

13. fundur

21.09.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

13. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

21.09.2013

Kl. 10:00 - 13:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Á dagskrá voru kynningarfundir þriggja umsækjenda af 5 um stöðu ráðgjafa við endurskoðun Aðalskipulags Garðabæjar.$line$Kl. 10.00 Guðni Pálsson arkitekt/ Á stofunni arkitektar / Auður Sveinsdóttir landlagsarkitekt$line$Fulltrúar ráðgjafateymisins voru: Guðni Pálsson arkitekt frá GP arkitektum, Hilmar Þór Björnsson arkitekt frá Á stofunni og Sigurður Thoroddsen skipulagsfræðingur.$line$Meðlimir teymisins gerðu grein fyrir hugmyndum sínum um nálgun á verkefnið, hvaða tækifæri felist í sameiningu Álftaness og Garðabæjar. Leggja beri áherslu á að halda sveitarfélaginu í sjálfstæðum einingum. Minnst var á sóknarfæri nýs aðalskipulags fyrir hið nýja sameinaða sveitarfélag m.a. í tengslum við ferðaþjónustu og útivist. Einnig kynntu þeir lauslega áætlun um kostnað við útfærslu aðalskipulags.$line$Hópurinn lauk kynningu á 20 mínútum og síðan var opnað fyrir spurningar og umræður í 10 mínútur.$line$Teymið skilaði af sér efni sem innihélt kynningarglærur og ítarefni. Áður hafði teymið skilað ítarlegum upplýsingum um meðlimi teymisins og reynslu af skipulagsráðgjöf ofl.$line$Teymið afhenti lokað umslag þar sem fram kom kostnaðaráætlun verkefnisins auk upplýsinga um útselt tímagjald. $line$Kl. 11.00 Hornsteinar /Landlínur/ Mannvit$line$Fulltrúar ráðgjafateymisins voru: Ögmundur Skarphéðinsson og Ragnhildur Skarphéðinsdóttir frá Hornsteinum og Þorsteinn Hermannson og Rúnar Bjarnason frá Mannviti.$line$Ögmundur Skarphéðinsson gerði grein fyrir reynslu meðlima teymisins af hönnun, aðalskipulagsgerð, skipulagsgerð almennt og umhverfismati. Sett var fram hugmynd að skipuriti verkefnisins, nálgun á viðfangsefnið, mótun stefnu, samráð og verkferli.$line$Teymið telur að unnt sé að ljúka aðalskipulagsgerð á tveimur árum ef ekki er gert ráð fyrir ófyrirsjáanlegum truflunum.$line$Hópurinn lauk kynningu á 30 mínútum og síðan var opnað fyrir spurningar og umræður í 10 mínútur.$line$Teymið skilaði af sér efni sem innihélt kynningarglærur og ítarefni. Áður hafði teymið skilað ítarlegum upplýsingum um meðlimi teymisins og reynslu af skipulagsráðgjöf ofl.$line$Teymið afhenti lokað umslag þar sem fram kom kostnaðaráætlun verkefnisins auk upplýsinga um útselt tímagjald. $line$Kl. 12.00 Kanon arkitektar / VSÓ ráðgjöf$line$Fulltrúar ráðgjafateymisins voru: Helga Bragadóttir arktiekt og Helgi Bollason Thóroddsen arkitekt frá Kanon arkitektum og Stefán Gunnar Thors umhverfishagfræðingur og Smári Ólafsson umferðarverkfræðingur frá VSÓ ráðgjöf.$line$Teymið gerði grein fyrir reynslu sinni á sviði aðalskipulagsgerðar, og skipulagsgerðar og telur sig hafa sérstöðu sem felst í þverfaglegri þekkingu og mikilli og fjölþættri reynslu af skipulagsstörfum og samvinnu fyrirtæknanna til margra ára. Brugðið var upp sýnishornum margvíslegra verkefna. $line$Gerð var grein fyrir sýn teymisins á verkefnið, lögð fram hugmynd að skipuriti og samskiptariti. Lögð var fram tímaáætlun og hugmynd að verkefnisskiptingu í fimm köflum. Teymið telur unnt að ljúka aðalskipulagsgerðinni á einu og hálfu ári. Þá kynnti hópurinn sýn sína á þau sóknarfæri sem gætu falist í aðalskipulagsvinnunni.$line$Hópurinn lauk kynningu á 30 mínútum og síðan var opnað fyrir spurningar og umræður í 10 mínútur.$line$Teymið skilaði af sér efni sem innihélt kynningarglærur og ítarefni. Áður hafði teymið skilað ítarlegum upplýsingum um meðlimi teymisins og reynslu af skipulagsráðgjöf ofl.$line$Teymið afhenti lokað umslag þar sem fram kom kostnaðaráætlun verkefnisins auk upplýsinga um útselt tímagjald. $line$$line$Kynningum var lokið klukkan 12.40.$line$$line$Að loknum kynningum ræddi skipulagsnefnd innihalda kynninganna og þau gögn sem lögð hafa verið fram um reynslu hópanna.$line$$line$Eins og áður hafði verið samþykkt þá skal við mat skipulagsnefndar við val á ráðgjafareymi að einum þriðja taka tillit til reynslu teymis að að aðalskipuagsgerð, til reynslu af gerð skipulagsmála almennt að einum þriðja og til frammistöðu í kynningu að einum þriðja. $line$$line$Eftir að fundarmenn, að tillögu formanns, höfðu gert grein fyrir skoðun sinni á frammistöðu teymanna og raðað teymum í þá röð sem viðkomandi taldi vera rétta voru opnuð lokuð umslög sem teymin höfuð afhent og innihéldu áætlun hvers teymis um kostnað og útselt tímagjald.$line$$line$Hópurinn samþykkti einróma að gera þá tillögu til bæjarráðs að eftirfarandi tveimur hópum sem efstir urðu við uppröðun verði boðið að ganga til viðræðna við fulltrúa bæjarins um að þeir taki að sér stöðu aðalskipulagsráðgjafa út frá niðurstöðu nefndarinnar og kostnaðaráætlun:$line$$line$Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar / Landmótun / Efla$line$$line$Kanon arkitektar / VSÓ ráðgjöf