Beint í efni

20. fundur

10.03.2016
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

20. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.03.2016

Kl. 17:00 - 20:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra
  • Silja Kristjánsdóttir - varamaður kennara

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Undir fjórða lið, Afgreiðsla umsókna í þróunarsjóð, víkja af fundi þeir sem ekki eru kjörnir fulltrúar

Dagskrá

Málsnúmer 1512265

01

Frítíminn er okkar fag - skýrsla ráðstefnu 16. okt 2015

Lagt fram til kynningar. Skóladeild falið að kanna nýtingu 10 - 12 ára barna í Garðabæ á tómstundastarfi þar sem það er í boði.

Málsnúmer 1602018

02

Umsókn um starfsleyfi fyrir þróunarskóla, sjálfstætt starfandi sérskóla

Umsókn um starfsleyfi fyrir sjálfstætt starfandi sérskóla

Skólanefnd finnst hugmyndin áhugaverð og falla vel að fjölbreytilegu skólastarfi í bænum. Nefndin felur fræðslu- og menningarsviði að ræða við hlutaðeigandi aðila og skoða í framhaldinu hvort bæjarfélagið hefur möguleika á að mæta þessu.

Málsnúmer 1603067

03

Starfsemi tómstundaheimila

Skólanefnd felur fræðslu- og menningarsviði að kanna hversu mörg börn nýta tómstundaheimili á sameiginlegum starfsdögum og í öðrum skólafríum.

Málsnúmer 1601592

04

Þróunarsjóður grunnskóla í Garðabæ 2016

Afgreiðsla umsókna í þróunarsjóð

Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ krónum 19.892.851.- í samræmi við reglur sjóðsins. Lagt er til að 21 verkefni fái styrk. Að þessu sinni bárust alls 32 umsóknir í sjóðinn. Skólanefnd fagnar fjölda áhugverðra umsókna sem bera merki um metnaðarfullt skólastarf í Garðabæ.