Beint í efni

21. fundur

14.04.2016
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

21. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Hofsstaðaskóla

14.04.2016

Kl. 17:00 - 20:20

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir - fulltrúi kennara
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1604102

01

Niðurstöður samræmdra könnunarprófa 2015

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með góða niðurstöðu í Garðabæ og metnað í skólastarfi. Mikilvægt er að nýta niðurstöður til góðra verka og skólarnir hafa þegar brugðist við niðurstöðum með breyttum áherslum í starfi.

Málsnúmer 1602458

02

Skóladagatal 2016-2017

Skólanefnd samþykkir skóladagatal 2016-2017. Ekki er unnt að verða við beiðni Alþjóðaskólans um undanþágu þar sem Alþjóðaskólinn sótti einnig um undanþáu og fékk frá skóladagatali 2015-2016. Viðmiðið er að skóli geti sótt um undanþágu frá skóladagatali á tveggja ára fresti sé um fagleg rök að ræða.

Málsnúmer 1603178

03

Geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga

Skólanefnd fagnar frumkvæði skólastjórnenda í Garðabæ að vekja athygli á brýnni þörf fyrir aukna geðheilbrigðisþjónustu barna og ungmenna.

Málsnúmer 1603310

04

Upplýsingar um nöfn umsækjenda um skólastjórastöðu Sjálandsskóla

Umsækjendur um stöðu skólastjóra við Sjálandsskóla og vinnuferli við ráðningu kynnt nefndarmönnum.