Beint í efni

34. fundur

07.06.2017
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

34. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Garðabæ

07.06.2017

Kl. 17:30 - 19:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Brynhildur Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Guðrún Ólafía Þorleifsdóttir - fulltrúi kennara
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Berglind Guðrún Bragadóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1705018

01

Niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar á menntun án aðgreiningar

Lagt fram til kynningar og umræðu. Skólanefnd óskar eftir ítarlegri kynningu á skýslunni þegar búið verður að greina einstaka þætti frekar.

Málsnúmer 1706057

02

Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa

Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að reglugerðin sé skýr, í samræmi við lög um grunnskóla og raunhæf í framkvæmd skólastarfs.

Málsnúmer 1706058

03

Yfirlit yfir málflokka skólanefndar grunnskóla 2016-2017

Lagt fram til kynningar, rætt um áherslur og störf nefndarinnar á liðnum vetri.

Málsnúmer 1706059

04

Áherslur Skólanefndar grunnskóla 2017-2018

Rætt um áhersluþætti komandi skólaárs, áhersla á mikilvægi þess að fylgja málum eftir, finna leiðir til að kynna og gera aðgengilegri þau verkefni sem fengið hafa styrk úr þróunarsjóði, tryggja að skólasamfélag Garðabæjar sé eftirsóknarverður vinnustaður og viðhalda jákvæðum skólabrag.