25. fundur
25. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.04.2013
Kl. 17:15 - 17:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
- Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Elín Thorarensen - aðalmaður
- Ragný Þóra Guðjohnsen - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
- Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
- Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
Ritari
- Oddný J. Eyjólfsdóttir
Dagskrá
01
Skóladagatal 2013-2014
Lögð voru fram skóladagatöl grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2013-2014 ásamt umsögnum skólaráða. Fram kom að skóladagatölin uppfylla kröfur laga um grunnskóla varðandi fjölda skóladaga. Skóladagatöl leikskóla og grunnskóla eru samræmd með tilliti til starfsdaga. Á vorönn verður fimm daga vetrarfrí nemenda í öllum grunnskólum í Garðabæ. Skólanefnd staðfesti framlögð skóladagatöl. Fallist var á beiðni Alþjóðaskólans um breytingu á einum starfsdegi vegna fagþjálfunar kennara. Einnig var fallist á beiðni Barnaskóla Hjallastefnunnar Garðabæ um breytingu á einum starfsdegi vegna ráðstefnu Hjallastefnunnar. Enda standi foreldrum til boða starf fyrir nemendur á þessum breyttu starfsdögum án viðbótarkostnaðar.
02
Samræmd könnunarpróf 2012
Lagðar voru fram greinargerðir grunnskóla um niðurstöður Samræmdra könnunarprófa 2012.
03
Ungt fólk 2012
Lagðar voru fram upplýsingar úr skýrslunni Ungt fólk 201; Hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10 bekk í Garðabæ um einelti og tölvunotkun. Í umræðum var meðal annars fjallað um mikilvægi forvarna, fræðslu til foreldra og samstarf.
04
Skákkennsla í grunnskólum Garðabæjar
Lagt fram bréf Taflfélags Garðabæjar um breytta tilhögun á skákkennslu í grunnskólum í Garðabæ.
05
Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2013
Lagðar fram upplýsingar um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2013. Greint var frá samstarfi fræðsluyfirvalda innan Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi símenntun grunnskólakennara.
06
Samstarfssamningur um Skólavogina
Lagðar fram upplýsingar um stýrðan aðgang fyrir skólanefnd að rekstrarupplýsingum og niðurstöðum samræmdra könnunarprófa í Skólavoginni.