4. fundur
4. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Álftanesskóla
15.11.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri
- Hilmar Þór Sigurjónsson - fulltrúi kennara
- Karólína Hreiðarsdóttir - varafulltrúi foreldra
Ritari
- Kristín Sigurðardóttir
Erna Ingibjörg Pálsdóttir skólastjóri Álftanesskóla og Anna María Skúladóttir aðstoðarskólastjóri Álftanesskóla, komu á fundinn undir 5. dagskrárlið.
Dagskrá
Málsnúmer 1808037
01
Starfsáætlanir grunnskóla 2018-2019
Lagðar fram til kynningar. Starfsáætlanir almennt vel unnar og metnaðarfullar. Rætt um fjarveru nemenda vegna leyfisbeiðna frá námi. Skólastjórar og skóladeild munu ræða reglur og lög sem gilda um leyfi frá námi og hvernig samræmingu er háttað í skólum Garðabæjar.
Málsnúmer 1810259
02
Spurningakönnun og vettvangsheimsóknir vegna framkvæmdar náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum
Tilkynning frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1801270
03
Samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara
Lagt fram til kynningar. Nefndarmönnum boðið að koma á fræðslufundina þann 23. nóvember nk. komi þeir því við.
Málsnúmer 1808202
04
Menntadagur í Garðabæ 2018
Rætt um nýliðinn Menntadag sem var vel heppnaður. Um 400 starfsmenn leik- og grunnskóla sóttu Menntadaginn og hlýddu á um 40 erindi og kynningar á þróunarverkefnum á leik- og grunnskólastigi. Þetta árið var nýjung þar sem tvær kynningar komu frá FG, en þau verkefni tengjast breytingum á kennsluháttum og námsmati. Skólanefnd vill þakka þeim sem komu að skipulagi, framkvæmd og þátttöku í dagskránni.
Málsnúmer 1810178
05
Kynning á Álftanesskóla
Skólastjórnendum þakkaðar góðar móttökur, sem og fyrir kynningu á skólastarfinu og þeim framkvæmdum sem standa yfir vegna viðbyggingar.