18. fundur
18. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.09.2012
Kl. 17:15 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Páll Jóhann Hilmarsson - Formaður
- Steinunn Jóhanna Bergmann - Aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - Aðalmaður
- Aðalbjörg Anna Stefánsdóttir - Varamaður
- Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir - Varamaður
- Þórey Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
- Ragnar Gíslason - fulltrúi skólastjóra
- Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
Ritari
- Oddný J. Eyjólfsdóttir
Dagskrá
01
Heimspekileg samræða í leik og grunnskólum lokaskýrsla
Bæjarráð vísaði skýrslunni til umræðu í skólanefnd grunnskóla
Brynhildur Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri Garðaskóla, kynnti lokaskýrslu verkefnisins Heimspekileg samræða í leik- og grunnskólum ásamt hugmyndum þróunarhópsins um innleiðingu heimspekilegrar samræðu sem kennsluaðferð í starfi skóla Garðabæjar í samræmi við skólastefnu Garðabæjar.
02
Ungt fólk 2012
Bæjarráð vísaði bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Rannsóknar og greiningar frá 29. ágúst og 4. september 2012 ásamt skýrslunni til kynningar í skólanefnd grunnskóla
Greint var frá útgáfu skýrslunnar Ungt fólk 2012.
03
Dagur gegn einelti
Erindi verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti dags. 6. september sl.varðandi Dag gegn einelti var vísað til skólanefndar grunnskóla.
Greint var frá bréfi verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti sem ákveðið hefur að helga 8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti.
04
Lokunardagur haustannar 2012
Bréf skólastjóra Barnaskóla Hjallastefnunnar varðandi kynningu á breytingu á staðfestu skóladagatali 2012-2013
Lagt var fram bréf skólastjóra Barnaskóla Hjallastefnunnar, Vífilsstöðum um kynningu á breytingu frá staðfestu skóladagatali 2012-2013. Fram kom að breytingar á staðfestu samræmdu skóladagatali fyrir leik- og grunnskóla geti haft kostnað í för með sér fyrir einhverja foreldra. Einnig kom fram í umræðunni að öll frávik frá samræmdu skóladagatali í leik- og grunnskólum í Garðabæ eru óæskileg.
05
Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ
Erindi stýrihóps um útikennslumiðstöð varðandi svæði til útikennslu dags. 27. ágúst sl. var vísað til skólanefndar grunnskóla til kynningar.
Kynnt var bréf stýrihóps um útikennslumiðstöð varðandi svæði til útikennslu. Umræðum var frestað og óskað eftir að Hafdís Kristmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri Hofsstaðaskóla kæmi á næsta fund til að kynna þróunarverkefnið um Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ sem hlaut styrk úr Sprotasjóði .
06
Ráðning starfsmanns við útikennslumiðstöð
Erindi stýrihóps um útikennslumiðstöð Garðabæjar varðandi ráðningu starfsmanns við útikennslumiðstöð dags 10. sept. sl. var vísað til kynningar í skólanefnd grunnskóla.
Kynnt var erindi stýrihóps um útikennslumiðstöð varðandi ráðningu starfsmanns við útikennslumiðstöðina. Umræðum var frestað og óskað eftir að Hafdís Kristmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri Hofsstaðaskóla kæmi á næsta fund til að kynna þróunarverkefnið um Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ sem hlaut styrk úr Sprotasjóði.
07
Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Lögð var fram greinargerð Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar varðandi rekstur Fjölbrautarskólans í Garðabæ til kynningar. Ákveðið að fresta frekari umfjöllun og umræðu til næsta fundar.