15. fundur
15. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Garðaskóla
05.12.2019
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Í upphafi fundar óskaði Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar, eftir að bæta við einum dagskrárlið um niðustöður Pisa 2018. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá
01
Starfsáætlanir grunnskóla 2019 - 2020
Starfsáætlanir lagðar fram til kynningar. Ánægja með metnaðarfullar og vel unnar starfsáætlanir.Rætt um fjölda nemenda, sérfræðiþjónustu og tómstundir barna í Garðabæ.
02
Skólastefna Garðabæjar 2020
Rætt um gerð nýrrar skólastefnu og hvernig heppilegt sé að vinna að gerð slíkrar stefnu.
04
Kennsluráðgjafar í UT í grunnskólum Garðabæjar
Elísabet Katrín, Anna Svanhildur, Eygló og Hildur kennsluráðgjafar í upplýsingatækni grunnskólum Garðabæjar komu til fundarins og sögðu frá starfi kennsluráðgjafa og kennslu í upplýsingatækni í grunnskólum Garðabæjar. Skólanefnd skoðaði upplýsingatækniver Garðaskóla.
05
Frístundaþjónusta við nemendur í 5. - 10. bekk
Karitas Bjarkadóttir umsjónarmaður frístundastarfs fyrir nemendur í 5. ? 10 bekk með kom til fundarins og sagði frá starfinu og ræddi um möguleika á bættri og stöðugri þjónustu við þennan hóp nemenda m.a. hvað varðar sumarstarf. Skólanefnd skoðaði aðstöðu starfseminnar.