7. fundur
7. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
27.01.2015
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Bryndís Stefánsdóttir - fulltrúi kennara
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1401493
01
Ytra mat á grunnskólum
Kynning á niðurstöðum ytra mats á Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum
Þóra Björk Jónsdóttir frá Námsmatsstofnun sagði frá framkvæmd ytra mats og kynnti niðurstöður ytra mats í Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum sem framkvæmt var haustið 2014.
Málsnúmer 1302243
02
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. Er hún hér með sent nefndum bæjarins til kynningar. Frestur til að skila inn umsögnum eða ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17.febrúar 2015. Senda skal umsagnir eða ábendingar til skipulagsstjóra Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.$line$Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar að Garðatorgi 7.$line$Almennur kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla miðvikudaginn 14.janúar og hefst hann klukkan 17.30. Þar verður lýsingin og innihald hennar kynnt almenningi.
Arinbjörn Vihjálmsson kynnti lýsingu aðalskipulagsgerðar í Garðabæjar
Málsnúmer 1501288
03
Íbúakönnun 2014
Margrét Björk Svavarsdóttir sagði frá niðurstöðu íbúakönnunar.$line$Skólanefnd lýsir ánægju með niðustöðu könnunar hvað varðar ánægju foreldra með þjónustu í grunnskólum bæjarins.
Málsnúmer 1501053
04
Þróunarsjóður grunnskóla
Reglur um þróunarsjóð grunnskóla
Reglurnar samþykktar og vísað til bæjarráðs.