26. fundur
26. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.06.2013
Kl. 17:15 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
- Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Elín Thorarensen - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
- Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
- Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
Ritari
- Oddný J. Eyjólfsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1204319
01
Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Staða málsins kynnt.

Þorsteinn Þorsteinsson og Gunnlaugur Sigurðsson kynntu stöðu málsins. Ræddar voru ýmsar hugmyndir um frekara samstarf milli FG og grunnskólanna í bænum.

Skólanefnd beinir því til bæjarstjórnar að skóladeild á fræðslu- og menningarsviði verði falið ásamt skólastjórum grunnskóla í Garðabæ að skoða möguleika á þróun fjölbreyttra námsleiða innan skólanna í samstarfi við FG og atvinnulífið.

Málsnúmer 1207152
02
Húsnæðisþörf Hofsstaðaskóla
Upplýsingar um drög að viðbyggingu við Hofsstaðaskóla.

Kynnt drög að viðbyggingu Hofsstaðaskóla. Í umræðu komu fram ábendingar og athugasemdir við fyrirliggjandi drög þar á meðal við svalir á 2. hæð sem snúa í norður. Forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs var falið að koma athugasemdum skólanefndar til skila til viðaðeigandi aðila.

Málsnúmer 1305797
03
Samstarfssamningur við Heimspekistofnun
Samstarfssamningur Heimspekistofnunar Háskóla Íslands og Garðabæjar um rannsóknarverkefni í leik- og grunnskólum Garðabæjar.

Kynntur samstarfssamningur Heimspekistofnunar Háskóla íslands og Garðabæjar um rannsóknarverkefni í leik- og grunnskólum Garðabæjar.

Málsnúmer 1201024
04
Samstarfssamningur um Skólavogina
Niðurstöður úr Skólavog fyrir grunnskóla Garðabæjar 2012-2013.

Lagðar fram niðurstöður úr Skólavog fyrir grunnskóla í Garðabæ 2012-2013.

Málsnúmer 1212153
05
Ungt fólk 2013; Niðurstöður Garðabær 8.-10. bekkur; mars 2013
Skýrsla Rannsóknar og greiningar;Vímuefnanotkun ungs fólks í Garðabæ árið 2013; Vímuefnanotkun meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk.

Lögð fram skýrslan Vímuefnanotkun ungs fólks í Garðabæ árið 2013; Vímuefnanotkun meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk.

Málsnúmer 1304768
06
Ungt fólk 2013; Niðurstöður Garðabær 5.-7. bekkur; febrúar 2013
Skýrsla Rannsókna og greiningar Hagir og líðan barna í grunnskólum Garðabæjar; Niðurstöður rannsókna meðal nemenda í 5., 6. og 7. bekk í Garðabæ árið 2013

Lögð fram skýrslan Hagir og líðan barna í grunnskólum Garðabæjar; Niðurstöður rannsókna meðal nemenda í 5., 6. og 7. bekk í Garðabæ árið 2013.

Fram kom að forvarnarnefnd mun standa fyrir kynningu á þessum skýrslum í september. Á þessa fyrirhuguðu kynningu verður boðið hlutaðeigandi nefndum, hagsmunaaðilum úr skólasamfélaginu sem og fulltrúum aðila sem koma að æskulýðs- og tómstundastarfi fyrir börn í Garðabæ.