29. fundur
29. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
01.10.2013
Kl. 17:15 - 17:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
- Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Elín Thorarensen - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
- Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
01
Húsnæðisþörf Hofsstaðaskóla
Baldur Svavarsson arkitekt mætir á fundinn og gerir grein fyrir nýrri teikningu af viðbyggingu við skólann
Baldur Svavarsson sýndi nýjar teikningar af viðbyggingu við Hofsstaðaskóla. Skólanefnd leist vel á þó einstök atriði þurfi að útfæra nánar í samráði við stjórnendur skólans.
02
Endurskoðun skólastefnu Garðabæjar
Á fundi bæjarstjórnar var lögð fram tillaga um að hefja vinnu við endurskoðun skólastefnu.
Ánægja með að tillagan sé komin fram. Umræður um aðferðir við mótun nýrrar skólastefnu.
03
Úr grunnskóla í framhaldsskóla
Aukin samvinna grunn- og framhaldsskóla í tengslum við flutning milli skólastiga. Námsráðgjafar í Garðabæ hafa óskað eftir því að stofnaður verði faghópur sem brúar bilið milli grunn- og framhaldsskóla m.t.t. brotfalls
Skólanefnd lýsir ánægju sinni með tillögurnar og skóladeild er falið að stofna faghóp sem ætlað er að tryggja að samstarfið sé með formlegum og markvissum hætti.
04
Flataskóli, samrekinn leik- og grunnskóli
Kynning á húsnæði leikskóladeildar Flataskóla.
Skólanefnd telur áhugavert að samþætta rekstur leik- og grunnskóla. Þó þarf að huga að aðgengismálum, s.s. útfærslu bílastæða, leiksvæða nemenda og meta íbúasamsetningu hverfisins m.t.t. fjölda barna á grunnskólaaldri á komandi árum. <SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 10pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA"></SPAN>