Beint í efni

32. fundur

30.01.2014
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

32. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

30.01.2014

Kl. 17:15 - 19:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
  • Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Elín Thorarensen - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Sveinbjörn M Njálsson - varamaður

Ritari

  • Margrét Björk Svavarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1309514

01

Endurskoðun skólastefnu Garðabæjar

Kynning á fyrstu niðurstöðum spurningakönnunar og skipulagi Skólaþings

Formaður upplýsti nefndina um stýrihóp sem leiðir vinnu við endurskoðun skólastefnu fyrir árin 2014 - 2017. Stýrihópurinn ákvað að virkja foreldra, nemendur og starfsfólk í skólum Garðabæjar með því að leggja fyrir könnun um hvað þessir hópar vildu leggja áherslu á á næstu árum. Kynnt voru svör frá starfsfólki og foreldrum og voru niðustöður ræddar. Upplýst var að þessar niðurstöður verða kynntar á skólaþingi 10. febrúar næst komandi.

Málsnúmer 1303152

02

Flataskóli, samrekinn leik- og grunnskóli

Kynning á fyrirhugaðri deild fyrir 4 ára börn í Flataskóla.

Kynnt var hugmyndin um að stofna deild fyrir 4. ára börn í Flataskóla. Verkefnahópur er að störfum að skoða þennan valkost fyrir 4. ára börn.

Málsnúmer 1305491

03

Undirbúningur að hönnun og framkvæmdum við nýjan skóla í Urriðaholti

Kynning á niðurstöðu útboðs vegna skóla í Urriðaholti

Útboð vegna Urriðaholts var kynnt. Tilboðsgjöfum voru gefin stig fyrir fyrirfram ákveðna þætti og fengu Úti og Inni arkitektar flest stig.