Beint í efni

18. fundur

20.03.2024
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

18. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Barnaskóla Hjallastefnunnar

20.03.2024

Kl. 16:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Hjördís Guðný Guðmundsdóttir
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hafdís Bára Kristmundsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Rakel Svansdóttir - varamaður kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2310233

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2023

Deildarstjóri þjónustu og starfrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður íbúakönnunar Gallup 2023.

Málsnúmer 2312005

02

Þróunarsjóður grunnskóla 2024

Kynntar voru niðurstöður um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2024. Alls bárust 11 umsóknir, samtals að fjárhæð 16.410.667.-. Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu og leggur skólanefnd til við bæjarráð að úthlutað verði 16.410.667.-, til 11 verkefna, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla. Stefnt er að annarri úthlutun síðar á árinu.

Málsnúmer 2403291

03

Rannsóknir og greining, niðurstöður 2023

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti niðurstöður R&G meðal nemenda í 5.- 7. og 8., - 10. bekkja, sem lögð var fyrir í október/nóvember 2023. Sérstök kynning var haldin mánudaginn 11. febrúar fyrir skólastjórnendur og pólitíska fulltrúa í Garðabæ. Frekari kynningar eru ráðgerðar í grunnskólum fyrir nemendur og forráðafólk.

Málsnúmer 2402322

04

Erindi til skólanefnda leik- og grunnskóla frá Hjallastefnunni

Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar óskar eftir að færa einn af skipulagsdögum haustsins á skóladagatali skólaársins 2024-2025, til 11. október 2024 vegna sameiginlegs starfsdags Hjallastefnunnar. Skólanefnd bókar að Garðabær hefur samþykkt skóladagatöl tvö ár fram í tímann. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins eins og tíðkast á starfsdögum. Skólanefnd gerir ráð fyrir að skipulagsdagar falli að skóladagatali Garðabæjar næstu árin.

Málsnúmer 2403275

05

Kynning og samtal við stjórnendur Hjallastefnunnar

Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Hjallastefnunnar fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti. Skólastjórar fór yfir nemendafjölda, mönnun aðstæður og framtíðarhorfur.