2. fundur
2. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Álftanesskóla
30.09.2022
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2209750
01
Starfsáætlanir grunnskóla 2022-2023
Starfsáætlanir grunnskóla lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með vel unnar áætlanir.
Málsnúmer 2209753
02
Menntadagurinn 2022
Rætt var um fyrirhugaðan Menntadag Garðabæjar sem haldinn verður þann 28. október nk. Þar verða m.a., kynnt þau verkefni sem fengu styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar 2020 og 2021.
Málsnúmer 2209751
03
Erindi til skólanefndar frá Álftanesskóla
Starfsfólk Álftanesskóla óskar eftir að færa skólaslitadag fram um einn dag og færa til seinnipart dags, þann 6. júní 2023 í stað þess að morgni 7. júní 2023, vegna fyrirhugaðrar námsferðar starfsfólks erlendis. Skólanefnd samþykkir erindið enda sé tryggt að starfsemi frístundaheimilisins raskist ekki.
Málsnúmer 2209752
04
Kynning og samtal við skólastjórnendur
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Álftanesskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.