3. fundur
3. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
02.11.2022
Kl. 16:00 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2023
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.
02
Menningarviðburðir fyrir skólahópa skólaárið 2022-2023
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2022-2023. Skólanefndin lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
03
Menntadagurinn 2022
Farið yfir Menntadaginn 2022 sem haldinn var í Hofsstaðaskóla fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla og frístundaheimila. Starfsfólki skólanna gafst kostur á að taka þátt í 20 málstofum þar sem kynntar voru helstu niðurstöður þeirra verkefna sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum undanfarin ár.
04
Forvarnarvika Garðabæjar 2022
Farið var yfir forvarnarvikuna í Garðabæ sem haldin var 5.-12. október. Unnið var með hugtökin farsæld, foreldrahlutverk og samvera. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með fjölbreytt og áhugaverð verkefni vikunnar.