34. fundur
34. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
02.10.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Anna María Skúladóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2509515
01
Starfsáætlanir grunnskóla 2025-2026
Starfsáætlanir grunnskóla voru lagðar fram og kynntar. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfullar og vel unnar starfsáætlanir.
Málsnúmer 2509516
02
Menntadagur leik- og grunnskóla 2025
Rætt var um Menntadag Garðabæjar 2025 sem haldinn verður þann 7. nóvember nk. Þar verða m.a. kynnt þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar á árunum 2022 - 2024.
Málsnúmer 2509517
03
Skólaþjónusta Garðabæjar - greining og tölfræði grunnskóla 2024 - 2025
Grunn- og tónlistarskólafulltrúi kynnti fjölda beiðna til sérfræðinga sem bárust skólaþjónustu grunnskóla skólaárið 2024-2025. Í allri vinnu skóla og skólaþjónustu er grunnstefið að leggja áherslu að hefja vinnu með börnum og fjölskyldum þeirra sem allra fyrst samkvæmt þrepaskiptri skólaþjónustu.
Fram kom að börnum sem vísað hefur verið áfram af fagfólki skólaþjónustu sveitarfélagsins, s.s. til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, Geðheilsumiðstöðvar barna og talmeinafræðinga þurfi oft að bíða mjög lengi eftir frekari þjónustu sem veitt er af ríkinu. Af því tilefni ítrekar skólanefnd mikilvægi snemmtækrar íhlutunar fagfólks á vegum ríkisins og hvetur til þess að lögð verð áhersla á að stytta biðtími barna í þau úrræði sem fagaðilar sveitarfélagsins hafa vísað börnunum til.