Beint í efni

15. fundur

10.01.2024
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

15. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

10.01.2024

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hafdís Bára Kristmundsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2312208

01

Íslenska æskulýðsrannsóknin í grunnskólum 2023

Kári Jónsson íþrótta-,tómstunda og forvarnarfulltrúi Garðabæjar kynnti niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vegna skólaársins 2022-2023.Skólanefnd óskar eftir fulltrúum frá Íslenskum æskulýðsrannsóknum á fund nefndarinnar til að fara nánar yfir niðurstöður.

Málsnúmer 2304498

02

Innleiðing farsældar í Garðabæ

Dagskrárlið frestað.

Málsnúmer 2211059

03

Þróunarsjóður grunnskóla 2023

Helstu áherslur Þróunarsjóðs grunnskóla Garðabæjar ræddar. Tekin var ákvörðun um að áherslur sjóðins 2024 verði:



Samskipta-, samkenndar- og leiðtogaþjálfun. Vellíðan í skóla.

Læsi og íslenska sem annað tungumál.

Menntun til farsældar barna og ungmenna í barnvænu samfélagi.

Framsæknir kennsluhættir og samvinna kennara/fagaðila, s.s. áhersla á tækni, nýsköpun og raungreinakennslu.

Umsóknir skulu berast fyrir 17. febrúar og verður þeim svarað fyrir 31. mars.

Málsnúmer 2312334

04

Greining og tölfræði grunnskóla 2023

Grunn- og tónlistarskólafulltrúi kynnti greiningu á stuðningsþörf og nemendafjölda grunnskólum Garðabæjar.