18. fundur
18. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
06.04.2017
Kl. 17:00 - 17:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1703060
01
Gjaldskrá 2017-2018
Fyrir fundinum lá tillaga að gjaldskrá fyrir skólaárið 2017-2018. Gerir gjaldskráin ráð fyrir 2,4% hækkun gjalda sem eru í samræmi við þær gjaldskrárhækkanir sem urðu um síðastliðin áramót.
Skólanefndin samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2017-2018.
Málsnúmer 1704019
02
Tónlistarskóladagatal 2017-2018
Skólastjóri fór yfir drög að skóladagatali 2017-2018 og helstu dagsetningar. Fram kom að tónlistarskólinn verður settur 23. ágúst og skólaslit verða 29. maí 2018. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi eru samræmd skóladagatali grunnskólanna en vetrarfrí er vikuna 19. - 23. febrúar. Skólanefnd vill taka fram að 1. ? 3. nóvember eru starfsdagar en þá halda kennarar í námsferð erlendis.
Skólanefndin samþykkir skóladagatalið fyrir sitt leiti.
Málsnúmer 1704020
03
Blásturshljóðfærakennsla - tilraunaverkefni
Skólastjóri lagði fram og kynnti minnisblað um blásararforskóla dagsett 29. mars 2017.
Skólanefnd tekur jákvætt í tillögu skólastjóra og skólastjóra falin afgreiðsla málsins.