Beint í efni

3. fundur

10.09.2014
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

3. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

10.09.2014

Kl. 12:00 - 12:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1409119

01

Ný stjórn Hönnunarsafns Íslands 2014-2018

Formaður bauð nýja stjórn velkomna og kynnti sig. Aðrir stjórnarmeðlimir kynntu sig og forstöðumaður og ritari stjórnar og sögðu frá væntingum sínum í því samstarfi sem er að hefjast.

Málsnúmer 1311017

02

Ný stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands

Kynnt stofnskrá safnsins sem nýlega var breytt að óskum Safnaráðs. Í framhaldi fékk safnið viðurkenningu Safnaráðs.

Málsnúmer 2010010055

03

Stefnumótun stjórnar 2010-2014

Stefnumótun stjórnar 2010-2014 kynnt. Ný stjórn skal vinna að stefnumótun til næstu 4. ára skv. Safnalögum.

Málsnúmer 1409118

04

Ýmis gögn er varða nýja stjórn

Ásamt stofnskrá og Stefnumótun stjórnar 2010-2014 eru lögð fram gögn: Siðareglur ICOM, Safnalög, Starfsáætlun 2014, hlutverk stjórnar, "Að byggja upp safn" ábending til safnaverðlauna 2014.

Formaður og forstöðumaður fóru yfir framlögð gögn.