3. fundur
3. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
10.11.2016
Kl. 12:15 - 13:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Harpa Þórsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1609005HO
01
Erindi til stjórnar frá Kraum
Lagt fyrir erindi frá forsvarsmanni verslunarinnar Kraum um að breyta opnunartíma safnsins. Stjórn felur forstöðumanni safnsins að ræða við hana frekar um erindið.
Málsnúmer 1611003HO
02
Staða reksturs og framvinda verkefna (stjf. 10.11.2016)
Forstöðumaður fór yfir stöðu safnsins og verkefni sem hlotið hafa styrki úr Safnasjóði og framvindu þeirra. Rekstrarstaða safnsins er góð og nokkrum verkefnum sem hlotið hafa styrk úr Safnasjóði fer að ljúka.
Málsnúmer 1605411
03
Aðgangseyrir og sjálfsaflafé
Framhald á umræðum frá síðasta fundi.
Farið var yfir gögn um gjaldskrár safna og aðgangseyri. Taka til frekari umræðu á næsta fundi í desember.
Málsnúmer 1611002HO
04
Kynningarmál safnsins - Sértæk kynningarmál
Varðar stofnun vinafélags
Forstöðumaður skýrði frá ráðgjafarvinnu sem lýtur að því að greina ýmislegt í starfsemi safnsins m.t.t. sértækrar kynningar og stofnunar vinarfélags. Stefnt að stofnun vinarfélags snemma á næsta ári.
Málsnúmer 1605410
05
Sýningar safnsins - Plötualbúm
Forstöðumaður skýrði frá því að hafa þurft að hætta við fyrirhugaða sýningu sem átti að opna í lok október á íslenskum plötualbúmum vegna veikinda sýningarstjóra.
Málsnúmer 1611001HO
06
Sérsýningar - Á pappír - teikningar og skissur hönnuða
Næsta sýning
Forstöðumaður skýrði frá næstu sýningu sem verður opnuð 19. nóvember næstkomandi. Sýningin var sett á dagskrá vegna óvæntrar niðurfellingar á sýningu á íslenskum plötuumslögum. Um er að ræða teikningar og skissur úr safneign safnsins og úr einkasöfnum. Hönnuðirnir sem eiga verk á sýningunni: Jónas Sólmundsson, Jón Kristinsson (Jóndi), Kristín Þorkelsdóttir, Stefán Jónsson, Sverrir Haraldsson, Lothar Grund.