Beint í efni

5. fundur

10.12.2014
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

5. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

10.12.2014

Kl. 11:30 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1409433

01

Greinargerð og áætlaður kostnaður við lagfæringar - Garðatorg 1 - Hönnunarsafn

Farið yfir kostnaðargreiningu og minnisblað verktakafyrirtækisins Strendings um húsnæði Hönnunarsafnsins m.t.t. lagfæringa og endurbóta. Stjórn felur forstöðumanni safnsins og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs að ganga í að skilgreina skýrsluna.

Málsnúmer 1412126

02

Leirmunasafn Önnu Eyjólfsdóttur

Safninu býðst að kaupa merkilega leirmuni. Um er að ræða stórt einkasafn með mikilvægum munum. Einnig býðst safninu að kaupa mjög merkileg verk eftir Guðmund frá Miðdal. Stjórn safnsins lýsir yfir miklum áhuga á að safnið byggi upp gott leirmunasafn og kaup á þessum verkum. Finna þarf leiðir til að leita fjármuna.

Málsnúmer 1412135

03

Önnur mál (stj.fundur 10.12.2014)

Fundartímar næsta árs

Sett skipulag funda á næsta ári.