4. fundur
4. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
15.12.2016
Kl. 12:00 - 13:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Harpa Þórsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1612004HO
01
Staða reksturs og framvinda verkefna (stjf. 15.12.2016)
Farið yfir rekstaráætlun safnsins og þau verkefni sem eru í gangi. Reksturinn er í jafnvægi.
Málsnúmer 1605411
02
Aðgangseyrir og sjálfsaflafé
Ræddar tillögur að tekjustofnum safnsins. Það er ástæða til að aðlaga gjaldskrá safnsins að því safnaumhverfi sem ríkir á landinu.
Stjórn felur forstöðumanni safnsins og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs að útbúa minnisblað með gjaldskrá safnsins sem lögð verði fyrir bæjarráð.
Málsnúmer 1612005HO
03
Samvinnuverkefni - leirmunir og stólar
Forstöðumaður kynnti samvinnuverkefni til kynningar á íslenskum stólum og íslenskum leirmunum.
Málsnúmer 1612003HO
04
Starfsáætlun 2017
Forstöðumaður kynnti starfsáætlun næsta árs. Markmið að sýningar og starfsemi nái til breiðari gestahóps og verkefni því tengd sett á laggirnar.