Beint í efni

3. fundur

17.08.2017
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

3. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

17.08.2017

Kl. 12:00 - 13:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - Forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1707002HO

01

Leki í húsgagnageymslu

Leki kom upp í geymslum út frá röri á efri hæð. Gera þarf úttekt á öllum lögnum er geta tengst geymslum safnsins. Safnsstjóri mun hafa samband við framkvæmdardeild bæjarins og vinna með þeim að úrbótum.

Málsnúmer 1708002HO

02

Hugmyndir að sýningum í framtíðinni

Safnsstjóri kynnti hugmyndir að næstu sýningum. Rætt var um söfnun á tölvugrafík. Stjórn tók vel í hugmyndir og fól safnstjóra að vinna þær nánar.

Málsnúmer 1708003HO

03

Nýtt fyrirkomulag á safnbúð

Fyrir liggur endurskoðun á fyrirkomulagi safnbúðar. Hugmyndir eru um að leggja áherslu vörur sem tengjast safnkosti og sýningum safnsins.

Málsnúmer 1703005HO

04

Úrvalsgripir úr safneign - bók

Kynnt er frumgerð af bók um Úrval Safngripa í Hönnunarsafni Íslands.

Málsnúmer 1703007HO

05

Staða reksturs og framvinda verkefna (stjf. 27.3.2017)

Lögð var fram yfirlit yfir tekjur og kostnað safnsins. Safnið er á áætlun.