Beint í efni

1. fundur

18.04.2018
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

1. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

18.04.2018

Kl. 14:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - Forstöðumaður
  • Katrín Friðriksdóttir

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1804002HO

01

Rekstrarniðurstaða 2017

Rekstrarniðurstaða Hönnunarsafnsins 2017 lögð fyrir ásamt rekstrarreikningi fyrir jan og feb 2018.

Rekstrarniðurstaða hönnunarsafnsins 2017 lögð fyrir, stofnunin er á áætlun. Stjórn fagnar góðri niðurstöðu. Jafnframt er lögð fram rekstrarniðurstaða vegna fyrsta ársfjórðungs 2018 sem einnig lofar góðu.

Málsnúmer 1801005HO

02

Sérsýningar Kron by KronKron

Sýningin Undraveröld Kron by Kronkron og viðburðir tengdir henni.

Sýningin Undraveröld Kron by Kronkron sem opnaði 18. mars á HönnunarMars. Rætt um fyrirhugaðar kynningar og uppákomur í tengslum við sýninguna.

Málsnúmer 1803001HO

03

Keramik sýning í Bláa lóninu - Sérsýningar

Skoðum keramik sýninguna "Fertile Soil" á vegum Hönnunarsafnsins í samstarfi við Bláa Lónið.

Keramiksýningin "Fertile Soil" á vegum Hönnunarsafnsins í samstarfi við Bláa Lónið Retreat skoðuð. Um er að ræða 46 verk flest frá sjöunda áratugnum og kennd við framleiðslufyrirtækin Glit og Funa.

Málsnúmer 1702007HO

04

Stofnun Hollvinafélags

Staða vinafélagsins.

Skráðir vinafélagar fá boð á opnanir og alla viðburði en ekki hefur verið staðið fyrir neinum sérstökum viðburðum aðeins fyrir vinafélaga. Til stendur að fyrsti slíki viðburðurinn verði 8. maí nk. sem verður heimsókn í hönnunarfyrirtækið Gagarín, í framhaldinu hafa verið skipulagðir tveir viðburðir til viðbótar á árinu. Forstöðumaður fundar með formanni vinafélagsins varðandi skipulag og utanumhald.