Beint í efni

4. fundur

19.11.2014
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

4. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

19.11.2014

Kl. 12:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Margrét Björk Svavarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1411199

01

Húsnæði Hönnunarsafns - upplýsingar til stjórnar

Ný stjórn Hönnunarsafns skoðar húsnæði safnsins, sérstaklega varðveislurými. Kynnt vinna sem er í gangi við að meta húsnæðið út frá ýmsum öryggisþáttum og aðstæðum starfsfólks og m.t.t. aukinnar starfsemi og varðveislu þar með.

Stjórn safnsins skoðaði varðveislu- og sýningarrými safnsins. Farið yfir forgangsmál til úrbóta. Skýrt frá vinnu sem er í gangi hjá verktakafyrirtækinu Strendingi við úttekt á húsnæði.

Málsnúmer 1411195

02

Staða - upplýsingar til stjórnar

Staða reksturs safnsins, tölur teknar saman 15. nóvember 2014.

Forstöðumaður skýrði frá stöðunni í rekstri safnsins. Fram kom að sértekjur safnsins verða töluverðar á þessu ári sem skýrist m.a. af nauðsynlegum styrkjum til sýninga. Rekstur safnsins skv. áætlun. Forstöðumaður skýrði frá kostnaði sýninga og hvar helstu kostnaðarþættir liggja.

Málsnúmer 1411200

03

Sýningar 2015 og verkefni

Lögð fram drög að sýningardagskrá og næstu verkefni.

Forstöðumaður skýrði frá stærstu verkefnum sem framundan eru í sýningarstarfi, bæði innan safnsins og utan þess. Einnig sagt frá öðrum verkefnum sem standa til eða eru þegar hafin. Starfsáætlun verður lögð fram á næsta stjórnarfundi.

Málsnúmer 1411201

04

Önnur mál (stj.fundur 19.11.2014)

Önnur mál sem upp koma.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hefur lýst yfir áhuga á að heimsæja safnið. Ákveðið að bjóða ráðherra sem fyrst. Ákveðið að gera fundaráætlun fyrir 2015 á næsta fundi stjórnar. $line$Forstöðumaður skýrði frá því að henni hefði verið boðið í dómnefnd Hönnunarverðlauna sem Hönnunarmiðstöð standa að. Forstöðumaður safnsins er formaður dómnefndar. Verðlaunin verða afhent 20. nóv. 2014.