Beint í efni

1. fundur

27.03.2017
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

1. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

27.03.2017

Kl. 12:00 - 12:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1703008HO

01

Rekstrarniðurstaða 2016

Forstöðumaður lagði fram niðurstöðu rekstrar síðasta árs og hún rædd. Rekstur ársins 2016 var í jafnvægi.

Málsnúmer 1703007HO

02

Staða reksturs og framvinda verkefna (stjf. 27.3.2017)

Sjá einnig næstu 4 fundarliði

Forstöðumaður lagði fram stöðu reksturs sem af er ári. Ekki eru allar tölur komnar inn. Ný sýning var opnuð fyrir nokkrum dögum og verkefni sem verið er að ljúka í tengslum við fyrri úthlutanir Safnasjóðs - vantar inn í rekstrartölur. Forstöðumaður lagði fram skjal til stjórnar með upplýsingum um helstu verkefni sem eru í gangi í safninu og stöðu þeirra.

Málsnúmer 1703005HO

03

Úrvalsgripir úr safneign - bók

Forstöðumaður skýrði frá stöðu útgáfu bókar um kjörgripi úr safneigninni sem hefur frestast, stefnt að útgáfu í apríl.

Málsnúmer 1605071

04

Stuðningur við kaup á leirmunasafni

Forstöðumaður kynnti meginatriði sí amvinnu við Bláa lónið. Lagðir fram 2 samningar til samþykktar vegna styrks og samvinnu Hönnunarsafnsins við Bláa lónið. Fyrri samningurinn er um styrk Bláa lónsins til Hönnunarsafnsins til að kaupa íslenskt leirmunasafn í einkaeigu og hinn samningurinn er um sýningarsamvinnu. Stjórn felur forstöðumanni að ganga til samninga við Bláa lónið.

Málsnúmer 1606096

05

Tilkynning um eftirlit Safnaráðs

Matsskýrsla Safnaráðs vegna eftirlits með viðurkenndum söfnum

Forstöðumaður skýrði frá nýju eftirliti Safnaráðs gagnvart Viðurkenndum söfnum. Helstu athugasemdir Safnaráðs til Hönnunarsafns Íslands um úrbætur ræddar. Forstöðumaður skýrði frá nokkrum athugasemdum sem verða gerðar til Safnaráðs.

Málsnúmer 1702007HO

06

Stofnun Hollvinafélags

Óformlegir undirbúningsfundir hafa staðið yfir. Stefnt að því að kalla saman undirbúningshóp fyrir páska á kynningarfund.

Málsnúmer 1703009HO

07

Starfslok forstöðumanns

Formaður fræðslu- og menningarsviðs skýrði frá tímasetningu starfsloka forstöðumanns, ekki ljóst hvort nýr forstöðumaður verði kominn til starfa þá, ráðningarferli stendur yfir. Forstöðumaður safnsins vék af fundi í lok dagskrárliðs þegar stjórn ræddi framvindu ráðningar.