Beint í efni

2. fundur

02.06.2016
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

2. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

í Hönnunarsafni við Garðatorg

02.06.2016

Kl. 12:00 - 13:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
  • Guðbjörg Magnúsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Auður Harpa Þórsdóttir - forstöðumaður
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Erling Ásgeirsson

Dagskrá

Málsnúmer 1605405

01

Staða reksturs og niðurstaða síðasta árs

Farið yfir rekstrarstöðu síðasta árs og stöðu rekstrar í dag. Stjórnarformanni falið að spyrjast fyrir um stöðuna á samningi við ríkið um stofnframlag.

Málsnúmer 1605411

02

Aðgangseyrir og sjálfsaflafé

Umræður um sjálfsaflafé og gjaldskrá vegna aðgangseyris skoðuð. Forstöðumaður skýrði frá tekjum af þessum lið á síðustu árum og ræddar hugmyndir um breytingar.

Umræður um sjálfsaflafé og gjaldskrá vegna aðgangseyris skoðuð. Forstöðumaður skýrði frá tekjum af þessum lið á síðustu árum og ræddar hugmyndir um breytingar.

Málsnúmer 1605110

03

Styrkir til safnsins 2016

Safnið fær úthlutað þremur styrkjum úr Safnasjóði í ár, samtals að upphæð 2.600.000kr. Svar barst óvenjuseint. Auk þeirra þriggja styrkja sem safnið fékk styrk til er fjórði styrkurinn samstarfsstyrkur með Gerðarsafni í Kópavogi og Hafnarborg í Hafnarfirði um samvinnu til þjálfunar starfsfólks og vegna vinnu við sameiginlega markaðssetningu (styrkur að upphæð 900.000kr. XXXX

Safnið fær úthlutað þremur styrkjum úr Safnasjóði í ár, samtals að upphæð 2.600.000kr. Svar barst óvenjuseint. Auk þeirra þriggja styrkja sem safnið fékk styrk fyrir, er fjórði styrkurinn samstarfsstyrkur með Gerðarsafni í Kópavogi og Hafnarborg í Hafnarfirði um samvinnu til þjálfunar starfsfólks og vegna vinnu við sameiginlega markaðssetningu.

Málsnúmer 1603297

04

Samkeppnisgögn - beiðni um vistun gagna

Forstöðumaður skýrði frá beiðni Framkvæmdasýslu ríkisins um varðveislu á samkeppnisgögnum bygginga (mannvirkja). Forstöðumaður telur að eðlilegt sé að Hönnunarsafnið varðveiti þessar samkeppnir líkt og samkeppnir á vegum Arkitektafélags Íslands. XXXX

Forstöðumaður skýrði frá því að Framkvæmdasýsla ríkisins hefði óskað eftir að safnið tæki á móti sambærilegum gögnum og safnið varðveitir í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Um er að ræða gögn sem eiga að vera í rafrænni geymslu. Ekki hefur verið gengið frá formlegu samkomulagi.

Málsnúmer 1604270

05

Sumarnámskeið í Hönnunarsafni

Klifið og Hönnunarsafn í samstarfi með sumarnámskeið í ágúst. Nemendur vinna verkefni í safninu. Stjórn fagnaði þessu verkefni. Forstöðumaður skýrði frá að vonandi væri þetta aðeins byrjun á slíku námskeiðastarfi. XXX

Klifið og Hönnunarsafn í samstarfi með sumarnámskeið í ágúst. Nemendur koma og vinna verkefni í safninu en námskeiðið er haldið í Holtsbúð.

Málsnúmer 1605410

06

Sýningar safnsins - Plötualbúm

Verkefni framundan - í október er fyrirhuguð sýning á íslenskum plötualbúmum. Hún standi fram til byrjun mars í sérsýningarými safnsins (aftara rými). Utanaðkomandi sýningarstjórar munu vinna sýninguna í samstarfi við safnið. XXX

Í október er fyrirhuguð sýning á íslenskum plötualbúmum. Hún standi fram til byrjun mars í sérsýningarrými safnsins (aftara rými). Utanaðkomandi sýningarstjórar munu vinna sýninguna í samstarfi við safnið.