Beint í efni

19. fundur

09.12.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar

19. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

09.12.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Halldór Halldórsson - varamaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1501541

01

Fræðslu- og söguskilti Búrfellsgjá

Nýtt fræðslu- og söguskilti um Búrfellsgjá og nágrenni afhjúpaði Jóna Sæmundsdóttir formaður laugardaginn 21. nóvember.

Boðið var uppá göngu milli minja í Búrfellsgjánni í leiðsögn umhverfisstjóra. Með frétt á vef bæjarins var settur upp fróðleikur um þessa staði s.s. Gjáarétt, Vatnsgjá, Réttargerði o.fl. eftir Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðing. Texti og kort eru hennar verk á skiltinu. Árni Tryggvason hannaði skiltið.

Nýtt fræðslu- og söguskilti um Búrfellsgjá og nágrenni afhjúpaði Jóna Sæmundsdóttir formaður laugardaginn 21. nóvember.

Boðið var uppá göngu milli minja í Búrfellsgjánni í leiðsögn umhverfisstjóra. Með frétt á vef bæjarins var settur upp fróðleikur um þessa staði s.s. Gjáarétt, Vatnsgjá, Réttargerði o.fl. eftir Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðing. Texti og kort eru hennar verk á skiltinu og Árni Tryggvason hannaði skiltið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512015

02

Samráðshópur Staðardagskrár 21 - fundargerð

Samráðshópur um Staðardagskrá 21 var haldinn í Mosfellsbæ þann 23. nóvember sl.

Fundur samráðshóps um Staðardagskrá 21 var haldinn í Mosfellsbæ þann 23. nóvember sl.

Umræða um aukna flokkun sorps.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510171

03

Ársfundur náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 2015

Ársfundur náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 2015 var haldinn 12. nóvember, Reykjavík var gestgjafi fundarins. Fundinn sóttu frá Garðabæ formaður og umhverfisstjóri.

Yfirlit yfir störf náttúruvendar/umhverfisnefnda eru unnin og send Umhverfisstofnun í lok hvers árs.

Ársfundur náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 2015 var haldinn 12. nóvember, Reykjavík var gestgjafi fundarins. Fundinn sóttu frá Garðabæ formaður og umhverfisstjóri.

Yfirlit yfir störf náttúruvendar/umhverfisnefnda unnin og send Umhverfisstofnun sem er samkvæmt lögum um náttúruvernd í lok hvers árs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506065

04

Strönd og lækir, mengunarmælingar

Frá Heilbrigðiseftirlitinu bárust niðurstöður mengunar mælinga við strendur, læki og vötn. Sýnatökur fóru fram á tímabilinu 11. - 18. nóvember 2015.

Frá Heilbrigðiseftirlitinu bárust niðurstöður mengunar mælinga við strendur, læki og vötn. Sýnatökur fóru fram á tímabilinu 11. - 18. nóvember 2015.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1512080

05

Uppgræðsla í beitarhólfi Krýsuvík

Erindi frá Landgræðslu ríkisins 3. des 2015 varðandi samstarf um landgræsðu beitarhólfs í Krýsuvík sem er fyrir sauðfé frá Hafnarfirði og Garðabæ. Meðfylgjandi áfangaskýrsla 2015 og áætlun fyrir 2016 um uppgræðslu í beitarhólfinu.

Leitað er eftir að Garðabær leggi til kr. 450.000 vegna þessa brýna uppgræðsluverkefnis árið 2016.